Bílalán og tækjalán
Fjármögnun bíla og tækja er í gegnum bílasala eða umboðsaðila. Lánað er til allt að 7 ára. Vextir eru breytilegir og miðast við 1 mánaðar Reibor vexti auk fasts álags.
Jafngreiðslulán eða almennt lán?
Jafngreiðslulán miðast við að greiða sömu mánaðarlegu upphæðina af láninu (miðað við að vextir breytist ekki). Stærri hluti greiðslunnar í upphafi eru vextir en greiðsla inn á höfuðstól er lægri.
Í almennu láni er jöfn afborgun af láninu í hverjum mánuði. Greiðslubyrðin er því hærri í upphafi en lækkar þegar líður á lánið, því vaxtagreiðslan minnkar.
Reikna þitt dæmiDæmi: kaupverð 3.000.000 kr., innborgun 750.000 kr. og sömu vextir á báðum lánum.
Hversu langt lán getur bíllinn fengið?
Miðað er við að lánstími og aldur bifreiðar fari samanlagt ekki yfir 12–15 ár, eftir lánshæfi og tegund bifreiðar. Hámarks lánstími er 7 ár.
Veldu árgerð til að sjá viðmiðið. Endanlegur lánstími ræðst af lánshæfi greiðanda.
Lánstími allt að 84 mánuðir (7 ár).
Atvinnutæki
ALÍSA lánar til fyrirtækja fyrir atvinnutækjum: hefðbundið bílalán á atvinnubifreiðar og tækjalán fyrir tæki sem eru skráningarhæf.
Fyrir fyrirtæki sem uppfylla lánshæfi er einnig í boði 100% fjármögnun tækja og bifreiða.
Svona er 100% fjármögnun sett upp
Kaupverðinu er skipt í tvö lán sem greidd eru samhliða. Þegar viðbótarlánið er uppgreitt lækkar mánaðargreiðslan.
Ofan á hvort lán bætist lántökugjald (3%) og gagnaöflun/þinglýsing samkvæmt gjaldskrá.
Hvað hefur áhrif á lánið?
Lánshæfi greiðanda hefur áhrif á endanleg lánakjör, sérstaklega lánstíma og upphæð láns.
Lánshæfi
Við ákvörðun um fjármögnun er horft til lánshæfiseinkunnar, veða og fjárhagskvaða. Forsenda láns er að lántaki sé ekki á vanskilaskrá hjá Creditinfo.
Aldur og tegund
Aldur bifreiðar eða tegund bifreiða og tækja hefur einnig áhrif á lánstíma og kjör.
Greiðslumat
Ef lánsfjárhæð er hærri en 2 m.kr. hjá einstaklingi eða 4 m.kr. hjá sambýlisfólki er gert greiðslumat.
Trygging
Lánin eru veðskuldabréf með veði í lausafé. Skylt er að hafa hið veðsetta lausafé ávallt ábyrgðar- og kaskótryggt.
Uppgreiðsla
Hægt er að greiða inn á lán eða greiða lánið upp án kostnaðar.
Kostnaður
Lántökugjald 3%, þinglýsingargjald 7.400 kr. og seðilgjald 790 kr. á mánuði.