Opið virka daga 9:00–16:00Sími 556-7000alisa@alisa.isVerðskrá
Sækja um lán
Forsíða / Fyrir lántaka

Upplýsingar fyrir lántaka

Allt sem skiptir máli eftir að lánið er komið: yfirlit, innborganir, uppgreiðsla, vextir og hvert á að senda fyrirspurnir.

Fyrirspurnir

Almennar fyrirspurnir um þjónustu ALÍSU: alisa@alisa.is

Staða lána og greiðslufyrirmæli: bakvinnsla@alisa.is

Mánaðarleg yfirlit

Mánaðarlega er sent yfirlit í heimabanka greiðanda með stöðu láns.

Í lok árs er sent skjal með stöðu láns og sundurliðuðum færslum ársins.

Seðilgjald

Seðilgjald er 790 kr. og miðast við að lánið sé í beingreiðslu og að greiðsluseðill sé eingöngu rafrænn.

Sjá verðskrá →

Greitt inn á lán eða upp

Hægt er að greiða inn á lán eða greiða upp lán án kostnaðar. Óskaðu eftir stöðu láns og bakvinnslan sendir til baka stöðu og greiðslufyrirmæli.

Biðja um stöðu láns

Sýnishorn: formið sendir ekkert. Beiðnir fara annars á bakvinnsla@alisa.is.

Tilvísun með millifærslu

Ef þú greiðir inn á lán er mikilvægt að bílnúmer eða fastanúmer komi fram í tilvísun millifærslunnar, t.d.:

AB123

Ef lánið er í skilum fer greiðslan fyrst inn á áfallna vexti og síðan höfuðstól. Ef greitt er í upphafi mánaðar fer greiðslan að mestu inn á höfuðstól.

Vextir lána

Vextir bíla- og tækjalána ALÍSU eru breytilegir, þar sem vaxtafótur er 1 mánaðar Reibor vextir auk fasts álags. Reibor vextir geta breyst og eru skráðir daglega á síðu Seðlabanka Íslands.

Vaxtaálagið er metið í upphafi lánveitingar og er fast eftir það. Matið byggir meðal annars á lánshæfismati, aldri og gæðum veðs, veðhlutfalli og lánstíma.

Greiðsluáætlun

Greiðsluáætlun miðast við vexti í upphafi láns. Ef Reibor vextir breytast hefur það áhrif á framtíðargreiðslur af láninu.

Greiðsluáætlun fylgir skuldabréfinu og þar koma einnig fram upplýsingar um ráðstöfun andvirðis bréfsins við útgreiðslu.

Reikna greiðsluáætlunUpplýsingar um neytendalán

Spurningar og svör

Finnurðu ekki svarið? Hafðu samband eða hringdu í 556-7000.

Hvað hefur áhrif á lánskjör og upphæð lána?

Lánshæfi greiðanda hefur áhrif á endanleg lánakjör og þá sérstaklega lánstíma og upphæð láns. Aldur bifreiðar eða tegund bifreiða/tækja hefur einnig áhrif.

Hvað er hægt að fá langt lán á bifreið?

Miðað er við að lánstími og aldur bifreiðar fari ekki yfir 12–15 ár (fer eftir lánshæfi og tegund bifreiðar). Hámarks lánstími er 7 ár.

Prófaðu viðmiðið eftir árgerð →

Er hægt að greiða upp lán?

Já, það er hægt. Sendu beiðni um stöðu láns og greiðslufyrirmæli á bakvinnsla@alisa.is.

Get ég greitt inn á lán?

Já. Ef það er gert er mikilvægt að í tilvísun millifærslu komi fram bílnúmer/fastanúmer. Ef lánið er í skilum fer greiðslan fyrst inn á áfallna vexti og síðan höfuðstól. Ef greitt er í upphafi mánaðar fer greiðslan að mestu inn á höfuðstól.

Hver er munurinn á jafngreiðsluláni og almennu láni?

Jafngreiðslulán miðast við að greiða sömu mánaðarlegu upphæðina (m.v. að vextir breytist ekki) af láninu. Þannig er stærri hluti greiðslunnar í upphafi vextir en greiðsla inn á höfuðstól láns lægri. Í almennu láni er jöfn afborgun af láni í hverjum mánuði þannig að greiðslubyrði er hærri í upphafi en lægri þegar líður á lánið (vaxtagreiðsla minnkar).

Sjá samanburð á myndriti →